Elsa Pálsdóttir keppti í fyrsta sinn á HM öldunga í kraftlyftingum með búnaði um liðna helgi. Gerði hún sér lítið fyrir og varð tvöfaldur heimsmeistari ásamt því að setja heimsmet í réttstöðulyftu í sínum flokki.
Elsa, sem keppti í -76 kg flokki öldunga 60-69 ára, lyfti mest 155 kg í hnébeygju sem er nýtt Íslandsmet og vann þar til gullverðlauna.
Í bekkpressu vann Elsa til silfurverðlauna með lyftu upp á 80 kg og tvíbætti jafnframt sitt eigið Íslandsmet.
Hápunktinum var svo náð í réttstöðulyftunni þegar hún fór upp með 175,5 kg, setti þannig nýtt heimsmet í sínum aldursflokki og vann gull fyrir greinina. Samanlagt lyfti Elsa 410,5 kg og varð önnur stigahæsta konan með 67.78 IPF stig.
Þá keppti Hörður Birkisson í -74 kg flokki öldunga 60-69 ára. Hörður lyfti 170 kg í hnébeygju sem er jöfnun á gildandi Íslandsmeti.
Í bekkpressu lyfti hann mest 120 kg og tvíbætti Íslandsmet Sæmundar Guðmundssonar.
Í réttstöðulyftu lyfti Hörður 180 kg en átti góða tilraun við 202,5 kg. Samanlagður árangur hans var 470 kg sem veitti honum fjórða sætið í flokknum.