Tennisgoðsögnin lét fjarlægja kýli

Serena Williams.
Serena Williams. AFP/Timothy A. Clary

Serena Williams, ein fremsta tenniskona í sögunni, gekkst á dögunum undir skurðaðgerð til þess að láta fjarlægja kýli úr hálsi sínum.

Kýlið var á stærð við greipaldin að sögn Williams, sem greindi frá aðgerðinni á TikTok-aðgangi sínum.

Hún uppgötvaði kýlið í maí síðastliðnum og var Williams þá tjáð af skurðlæknum að hún þyrfti ekki að láta fjarlægja það ef hún vildi það ekki.

Kýlið hélt hins vegar áfram að stækka og þrátt fyrir að ekki væri um æxli að ræða, en öll sýni voru neikvæð, var Williams að lokum ráðlagt að fjarlægja kýlið, sem var gert á dögunum.

Ráðlegt væri að fjarlægja það vegna þess að sýking gæti borist í kýlið á hálsinum og farið að leka úr því.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert