Kynntu nýtt merki KR

Nýja útgáfan af merki KR.
Nýja útgáfan af merki KR. Ljósmynd/KR

Knattspyrnufélag Reykjavíkur fagnar 125 ára afmæli í ár. Af því tilefni var ákveðið að uppfæra merki félagsins örlítið.

„Í tilefni af 125 ára afmæli KR var ákveðið að skoða merkið og heildarásýnd félagsins. Við hönnun á nýrri útgáfu var horft í upprunann og sígildum eiginleikum eldri merkja gert hátt undir höfði,“ segir í tilkynningu frá KR.

Lesa má um sögu merkisins á heimasíðu félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert