Íslendingarnir grétu úr gleði (myndskeið)

Íslenska landsliðið náði mögnuðum árangri í Bakú.
Íslenska landsliðið náði mögnuðum árangri í Bakú. Ljósmynd/Fimleikasamband Íslands

Blandaða lið Íslands í ungmennaflokki gat ekki haldið aftur tilfinningum sínum þegar tilkynnt var að Ísland væri Evrópumeistari í hópfimleikum í Bakú í dag. 

Íslenska liðið sigraði með 50.600 stig, 550 stigum meira en Bretland í öðru sæti. 

Þegar tilkynnt var um sigurvegara grét íslenska landsliðsfólkið úr gleði. 

Hér að neðan má sjá það augnablik. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert