Íslenska liðið í fimmta og Danir Evrópumeistarar

Blandaða lið Íslands.
Blandaða lið Íslands. Ljósmynd/Fimleikasambandið

Blandaða lið Íslands hafnaði í fimmta sæti á Evrópumótinu í hópfimleikum í Bakú í dag. 

Íslenska liðið fékk alls 49.850 stig en Danmörk varð Evrópumeistari með 55.700 stig. 

Bretland endaði síðan í öðru sæti með 55.100 stig, Svíþjóð í þriðja með 54.400 stig, Noregur í fjórða með 52.100 stig og Ítalía í sjötta með 48.800 stig. 

Íslenska liðið hlaut 16.300 stig fyrir gólfæfingar, 17.300 stig fyrir stökk og 16.250 stig fyrir trampólín. 

Íslenska kvennalandsliðið varð Evrópumeistari fyrr í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert