Kári Arnarsson var hetja SR þegar liðið tók á móti SA í Toppdeild karla í íshokkí í Skautahöllinni í Laugardal í dag.
Leiknum lauk með naumum sigri SR, 4:3, en Kári skoraði sigurmarkið þegar tæp mínúta var til leiksloka.
Þá voru þeir Gunnlaugur Þorsteinsson, Alex Sveinsson og Hákon Magnússon einnig á skotskónum fyrir SR en Jóhann Leifsson, Ólafur Björgvinsson og Ormur Jónsson skoruðu mörk SA.
SR er með 9 stig í efsta sæti deildarinnar, þremur stigum meira en SA og Fjölnir, en SA á leik góða á SR.