SA vann stórsigur á SR

Magdalena Sulova, til vinstri, skoraði fimmta mark SA í kvöld.
Magdalena Sulova, til vinstri, skoraði fimmta mark SA í kvöld. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

SA vann stórsigur gegn SR, 5:0, í toppdeild kvenna í íshokkí í Skautahöllinni í Laugardal í dag.  

SA byrjaði leikinn af miklum krafti og var 3:0 yfir eftir fyrsta leikhluta. Heiðrún Rúnarsdóttir, Aðalheiður Björgvinsdóttir og Sólrún Arnardóttir skoruðu mörk SA í fyrsta leikhluta.  

Eyrún Garðarsdóttir skoraði síðan fjórða mark SA á 24. mínútu. Magdalena Sulova innsiglaði sigur SA á 44. mínútu með marki.  

SA situr áfram í öðru sæti með sex stig eftir fjóra leiki. SR er á botninum án sigurs eftir fimm leiki.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert