Knattspyrnufélagið Fram og Reykjavíkurborg hafa náð saman um viðauka samning frá árinu 2017, sem snýr að frekari uppbyggingu mannvirkja við íþróttaaðtöðu Fram í Úlfarsárdal. Meðal annars snýr samkomulagið að því að því að reisa knatthús.
Viðaukinn nær inn á byggingu á áhaldageymslu, knatthúsi og betrumbætta blaðamannaaðstöðu.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsvæði félagsins fram.is.
„Samkvæmt nýja samningnum hefjast framkvæmdir árið 2025 með byggingu á áhaldageymslu, sem mun tengja saman núverandi íþróttahús Fram og fyrirhugað knatthús. Á sama tíma verður ráðist í endurbætur á blaðamannastúkum fyrir bæði innanhússíþróttir og knattspyrnuvöllinn, sem mun bæta upplifun og aðstöðu fyrir sjónvarpsútsendingar og blaðamenn,“ segir í tilkynningu á Fram.is
Stefnt er að því að bygging knatthússins hefjist árið 2027 í samræmi við samþykkta fjárfestingaáætlun Reykjavíkurborgar.
Samningur frá 2017
„Fram hefur gegnt mikilvægu hlutverki í íslensku íþróttalífi frá upphafi og þessi nýja aðstaða er stór áfangi í sögu félagsins, sem hefur rækilega fest rætur í Úlfarsárdalnum á síðastliðnum árum. Með þessum viðauka vonast félagið til að lausn hafi náðst á málefnum tengdum uppbyggingu knatthúss, áhaldageymslu og blaðamannastúku, eins og samningur frá 2017 kveður á um. Félagið lítur jákvætt til framtíðar og vonar að áframhaldandi samstarf við fyrirhugaðar umbætur verði Fram og Reykjavíkurborg til hagsbóta,“ segir í tilkynningu.
„Sigríður Elín Guðlaugsdóttir, formaður Knattspyrnufélagsins Fram, og Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkurborgar, lýsa yfir ánægju með að samkomulag sé í höfn og hlakka til að sjá verkefnið verða að veruleika en það mun vera til hagsbóta fyrir alla íbúa Grafarholts og Úlfarsárdal og stuðla að frekari vexti félagsins.“