Missir af næsta landsliðsverkefni

Guðný Árnadóttir.
Guðný Árnadóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnukonan Guðný Árnadóttir verður ekki með íslenska kvennalandsliðinu þegar liðið mætir Danmörku í vináttulandsleik á Pínatar á Spáni, þann 2. desember.

Þetta tilkynnti hún í samtali við fótbolta.net en Guðný, sem er 24 ára gömul, er að glíma við meiðsli.

„Ég held að ég sé ekki að fara í næsta landsliðsverkefni, er að fara í aðgerð á fæti núna á næstunni,“ sagði Guðný í samtali við fótbolta.net.

„,Ég er búin að vera spila í gegnum meiðsli í langan tíma, búin að vera drepast í tánum lengi,“ sagði Guðný sem er samningsbundin Kristianstad í Svíþjóð.

Guðný á að baki 34 A-landsleiki og hefur verið fastamaður í landsliðshópnum síðustu ár en Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska liðsins, mun tilkynna leikmannahóp sinn fyrir komandi verkefni á föstudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka