Youtubestjarnan og hnefaleikakappinn Jake Paul skaut föstum skotum á Mike Tyson fyrir bardaga þeirra sem fer fram aðfaranótt laugardags í Las Vegas.
Á fréttamannafundi í gær var Paul með eyrnahlíf þakta demöntum að andvirði 200.000 bandaríkjadala, jafnvirði 28 milljóna íslenskra króna.
„Ég ætla ekki að láta bíta draslið af mér á föstudagskvöld,“ sagði Paul og vísaði til þess þegar Tyson beit hluta af eyra Evanders Holyfields í frægum bardaga árið 1997.
Rúmlega þriggja áratuga aldursmunur er á hnefaleikaköppunum en Paul er 27 ára og Tyson er 58 ára.
Tyson ákvað að taka hnefaleikahanskana af hillunni fyrir þennan eina bardaga og fær ríkulega greitt fyrir, um 20 milljónir bandaríkjadala eða 2,8 milljarða íslenskra króna.