Mike Tyson veitti Jake Paul kinnhest eftir vigtun þeirra fyrir bardaga sinn í hnefaleikum sem fer fram í Las Vegas í nótt.
Paul hefur nýtt vikuna í að gera lítið úr Tyson og virtist reynsluboltanum loks nóg boðið í gær þegar hann löðrungaði Youtubestjörnuna í kjölfar þess að Paul hafði skriðið upp að honum.
Öryggisverðir voru fljótir að grípa inn í og skakka leikinn. Tyson sagði að nú skildu þeir hætta að tala og rauk af sviðinu.
„Ég fann ekki einu sinni fyrir þessu. Hann er reiður. Hann er reiður lítill álfur. Mike Tyson, mér fannst þetta krúttlegur kinnhestur en á morgun verður þú rotaður,“ sagði Paul.