SR vann sinn fyrsta sigur á Íslandsmóti kvenna í íshokkí í gær þegar liðið tók á móti Fjölni í Skautahöllinni í Laugardal.
Leiknum lauk með naumum sigri SR, 3:2, þar sem Sara Sigurðardóttir tryggði SR sigurinn með marki í framlengingu.
Inga Aradóttir kom SR yfir og Saga tvöfaldaði forystu SR snemma í öðrum leikhluta. Hilma Bergsdóttir og Kolbrún Garðarsdóttir jöfnuðu hins vegar metin fyrir Fjölni og staðan var því 2:2 að venjulegum leiktíma loknum.
SR er með þrjú stig í þriðja og neðsta sæti deildarinnar en Fjölnir er á toppnum með 16 stig.