„Skák að selja sig með nekt“

Magnus Carlsen.
Magnus Carlsen. AFP/Benjamin Cremel

Magnus Carlsen, norski stórmeistarinn í skák, sló á létta strengi á Instagram-aðgangi sínum í gær.

„Eins og venjulega reynir skák að selja sig með nekt,“ skrifaði Carslen við ljósmynd af sér og öðrum karlmanni að tefla.

Það sem þótti óhefðbundnara við ljósmyndina var að skákin fór fram í sundlaug í Singapúr og skákmennirnir því léttklæddari en venja er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert