Kolbeinn mætir Pólverja í Vínarborg

Kolbeinn Kristinsson.
Kolbeinn Kristinsson. Ljósmynd/Kolbeinn

Hnefaleikamaðurinn Kolbeinn Kristinsson mætir Piotr Cwik í þungavigarbardaga í hringnum þann 7. desember í Vínarborg í Austurríki.

Kolbeinn, sem er atvinnumaður í greininni, er ósigraður í 16 bardögum en Pólverjinn Cwik hefur unnið sjö bardaga á ferlinum og tapað einum.

Sem stendur er Kolbeinn í 86. sæti á heimslistanum í þungavigt en sigur gegn Pólverjanum gæti fleytt honum á topp 50 listann.

Síðasti bardagi Kolbeins var gegn Mika Mielonen í Helsinki í Finnlandi í september þar sem Kolbeinn varði Uinion-beltið sitt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert