Eygló og Þórbergur lyftingafólk ársins

Eygló Fanndal Sturludóttir.
Eygló Fanndal Sturludóttir. Ljósmynd/Gregor Winters

Eygló Fanndal Sturludóttir og Þórbergur Ernir Hlynsson hafa verið valin lyftingafólk ársins 2024 af Lyftingasambandi Íslands. Þau keppa bæði fyrir Lyftingafélag Reykjavíkur.

Eygló hefur átt stórkostlegt ár en hún hefur sett sex Íslandsmet í fullorðinsflokki á árinu. Hún varð Norðurlandameistari í -71 kg flokki kvenna og hafnaði í fjórða sæti á Heimsmeistaramótinu í Barein en þar lyfti hún 239 kg samanlagt.

Þórbergur er Íslandsmeistari í -96 kg flokki karla. Hann hreppti gullið á Norðurlandameistaramóti unglinga, 20 ára og yngri. Hann setti einnig fimm Íslandsmet í fullorðinsflokki á árinu.

Þórbergur Ernir Hlynsson á fyrstasætispallinum.
Þórbergur Ernir Hlynsson á fyrstasætispallinum. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka