Val á íþróttakonu, íþróttakarli og íþróttaliði Hafnarfjarðar fór fram í íþróttahúsinu Strandgötu í dag. Elín Klara Þorkelsdóttir frá Haukum er íþróttakona Hafnarfjarðar 2024 og Daníel Ingi Egilsson frá FH er íþróttakarl Hafnarfjarðar 2024. Meistaraflokkur FH karla í handknattleik er afrekslið Hafnarfjarðar 2024.
Sundmaðurinn Anton Sveinn McKee var við sama tilefni heiðraður. Í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ segir í umsögnum um Elínu Klöru, Daníel Inga, FH og Anton Svein:
Elín Klara er íþróttakona Hafnarfjarðar annað árið í röð
Elín Klara Þorkelsdóttir er íþróttakona Hafnarfjarðar 2024 rétt eins og í fyrra. Þrátt fyrir ungan aldur er Elín Klara orðin ein besta handknattleikskona landsins. Hún hefur skapa sér nafn bæði hérlendis og erlendis. Á tímabilinu 2023-2024 leiddi hún meistaraflokk Hauka til úrslita í Íslandsmótinu þar sem liðið tapaði fyrir Val. Að tímabilinu loknu var Elín Klara valin besti leikmaður deildarinnar annað tímabilið í röð en Elín var einnig markahæsti leikmaður deildarinnar. Í lok árs sitja Elín og félagar í Haukum í 3. sæti Olís deildar kvenna og er Elín Klara sem stendur markahæsti leikmaður deildarinnar ásamt því að vera í öðru sæti yfir þá leikmenn sem hafa gefið flestar stoðsendingar.
Elín Klara átti fast sæti í A-landsliði kvenna á árinu sem tryggði sig inn á lokakeppni Evrópumóts í fyrsta skiptið í 12 ár sem fram fór fyrr í desember. Elín Klara var þar í stóru hlutverki þar sem hún stýrði leik liðsins að festu og var ein af markahæstu leikmönnum liðsins. Á árinu lék Elín Klara einnig með U-20 ára landsliði Íslands þar sem þær léku í lokakeppni HM. Þar var Elín fremst í flokki þegar liðið náði besta árangri sem íslenskt kvennalandslið hefur náð eða 7. sæti. Að mótinu loknu var Elín Klara svo valin í úrvalslið mótsins sem besti leikstjórnandi mótsins.
Daníel Ingi er íþróttakarl Hafnarfjarðar 2024
Daníel Ingi Egilsson, sem nú er 24 ára, byrjaði að æfa frjálsíþróttir aftur haustið 2021 eftir nokkurra ára hlé. Hann hefur síðan náð stórstígum framförum í langstökki og þrístökki. Hann komst á árinu í hóp þeirra allra bestu í heiminum í langstökki þegar hann varð Norðurlandameistari. Hann stökk 8,21 m og bætti þar með 28 ára gamalt Íslandsmet (8,00 m) Jóns Arnars Magnússonar.
Daníel Ingi varð meðal annars Norðurlandameistari í þrístökki árið 2023 með 15,98 m og stökk lengst 7,92 m í langstökki það ár. Hann keppti svo á Evrópumeistaramótinu er fram fór í Róm í byrjun júní, stökk þá einnig 7,92 m og rétt missti af því að komast í úrslit. Á þessu ári er Daníel í 17. sæti bestu langstökkvara í heimi. Einungis 9 cm vantaði til að komast upp í 9. sætið, svo mjótt er á munum. Afrek Daníels Inga er besta afrek FH-ings frá upphafi í frjálsíþróttum og fimmta besta afrek Íslendings í frjálsíþróttum frá upphafi samkvæmt afreksstigum alþjóða frjálsíþróttasambandsins IAAF.
Bæði deildarmeistarar og Íslandsmeistarar á árinu
Meistaraflokkur karla hjá FH varð bæði deildar- og Íslandsmeistarar á árinu. Liðið lék afar vel í deildarkeppninni á síðasta tímabili og endaði á því að tryggja sér deildarmeistaratitillinn í lokaumferð deildarinnar. Þetta var fyrsti deildarmeistaratitill FH frá árinu 2017. Í úrslitakeppninni sjálfri stóð liðið svo einnig uppi sem sigurvegari eftir að hafa slegið út KA í 8 – liða úrslitum, ÍBV í undanúrslitum og síðar Aftureldingu í sjálfu úrslitaeinvíginu. FH varð þar með Íslandsmeistari í fyrsta sinn síðan 2011 og í 16. sinn innanhúss. FH-liðið tók einnig þátt í Evrópubikarnum á síðastliðnu tímabili og náði þar frábærum árangri. Liðið sló út Argos frá Grikklandi, Bocholt frá Belgíu og Partizan Belgrad frá Serbíu áður en það féll úr leik gegn hinu öfluga Tatran Prezov frá Slóvakíu.
Anton Sveinn Mckee heiðraður
Á árinu tilkynnti Anton Sveinn McKee, sundmaður úr Sundfélagi Hafnarfjarðar og landsliðsmaður fyrir íslenska landsliðið í sundi, ákvörðun sína um að leggja keppnisskýluna á hilluna eftir farsælan feril sem einn af bestu íslensku sundmönnum landsins fyrr og síðar. Á viðurkenningarhátíðinni var Anton Sveinn heiðraður sérstaklega fyrir afrek sín og árangur. Anton Sveinn hóf feril sinn hjá Sundfélagi Hafnarfjarðar, sjö ára gamall. Um tólf ára aldurinn fór hann að uppskera og upphófst langur ferill sem skilað hefur mörgum Íslandsmeistaratitlum í 200 til 1500m skriðsundi, 400m fjórsundi og 50-200m bringusundi.
Í dag á hann 13 Íslandsmet og 8 Íslandsmet unglinga. Hann tók þátt í 8 Evrópumeistaramótum og 8 Heimsmeistaramótum með góðum árangri og vann sér inn keppnisrétt á fjórum Ólympíuleikum. Með sérstakri viðurkenningu á hátíðinni vill heilsubærinn Hafnarfjörður og íþrótta- og tómstundanefnd þakka Antoni Sveini sérstaklega fyrir framlag sitt sem afreksíþróttamaður, að vera fyrirmynd fyrir ungt íþróttafólk og einstakan árangur og feril.