Fær milljónir í nýrri atvinnumannadeild

Björgvin Karl Guðmundsson
Björgvin Karl Guðmundsson mbl.is/Kristinn Magnússon

Björgvin Karl Guðmundsson hefur samþykkt samningstilboð frá nýrri atvinnumannadeild í crossfit. Deildin ber nafnið World fitness project.

Með samningnum verður Björgvin á föstum tekjum í stað þess að treysta einungis á verðlaunafé og auglýsingasamninga.

Þrátt fyrir að vera kominn í atvinnumannadeild má Björgvin enn taka þátt í heimsleikunum, stærstu crossfit-keppni heims.

Björgvin er einn 20 crossfit-manna sem fengu samning hjá nýju samtökunum. Einnig verður kvennadeild hjá samtökunum sem inniheldur einnig 20 crossfit-konur.

Barbell Spin greinir frá að samningurinn sé upp á allt að 100.000 dollara eða um 14 milljónir króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka