Ragnar Friðbjarnarson, þjálfari Íþróttasambands fatlaðra í sundi, hefur skrifað undir nýjan samning við sambandið sem gildir fram yfir Paralympics í Los Angeles í ágúst árið 2028.
Ragnar hefur þjálfað landslið fatlaðra í sundi undanfarin fjögur ár og fór til að mynda með íslenska hópinn á Paralympics í París á síðasta ári.
Þar komust allir fjórir íslensku sundmennirnir í úrslit í sínum greinum og settu alls fjögur ný Íslandsmet.
Ragnar og Þórður Árni Hjaltested, formaður ÍF, undirrituðu nýja samninginn við upphaf Nýársmóts ÍF sem fór fram í Laugardalslaug á laugardag.