Líkamsárás um hábjartan dag á Þingvallaveginum

„Við vorum að hjóla heim frá Þingvöllum, alveg út í kanti, og það var engin umferð,“ sagði margfaldi Íslandsmeistarinn og hjólreiðakonan María Ögn Guðmundsdóttir í Dagmálum.

María Ögn, sem er 43 ára gömul, stendur á tímamótum á sínum ferli en hún hefur verið ein fremsta hjólreiðakona landsins undanfarna tvo áratugi.

Sleginn með hvítri snúru

María lenti í lífshættulegu atviki árið 2020 þegar hún var að hjóla heim frá Þingvöllum ásamt sambýlismanni sínum og félaga þeirra.

„Það koma þarna krakkar á tveimur bílum og þau ákveða að keyra alveg upp að Hafsteini og slá hann í andlitið með hvítri snúru út um bílgluggann,“ sagði María Ögn.

„Það verður til þess að hann fipast og hjólið mitt fer í hans hjól. Ég er nálægt því að detta en næ að halda mér með því að setja fótinn út. Fóturinn fer nánast í bílinn fyrir aftan okkur og ég held að fáir aðrir en ég hefðu getað bjargað sér út úr þessum aðstæðum,“ sagði María.

Heiftin verður meiri

„Þarna var ég að fara detta undir Land Cruiser en næ að bjarga mér. Þetta var stórt áfall en við ákveðum svo að hringja í lögregluna og korteri síðar kemur ákveðin sturlun yfir mann.

Af hverju er ráðist svona á mann? Fyrir hverjum er ég? Þetta var líkamsárás og ég fór heim og knúsaði litla barnið mitt. Ég var ógeðslega reið eftir þetta. Við kærðum þetta en það fór ekkert lengra þannig að það var ekkert gert í þessari líkamsárás.

Svona er þetta en það er alltaf að verða minna og minna um þetta. Það er líka leiðinlegt að tala um þetta því þá finnst manni eins og að heiftin verði meiri,“ sagði María Ögn meðal annars.

Viðtalið við Maríu Ögn í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

María Ögn Guðmundsdóttir.
María Ögn Guðmundsdóttir. Ljósmynd/María Ögn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert