Íslenska stúlknalandsliðið í íshokkí, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, hélt áfram sigurgöngu sinni í 2. deild B á heimsmeistaramótinu í Istanbúl í Tyrklandi í dag.
Ísland vann þá sannfærandi sigur á Mexíkó, 5:1, og er með fullt hús stiga, níu eftir þrjá leiki, og á fyrir höndum hreinan úrslitaleik gegn Tyrkjum á morgun en tyrkneska liðið er líka með níu stig.
Íslenska liðið hefur hins vegar skorað 29 mörk gegn einu á mótinu en tyrkneska liðið 18 mörk gegn einu.
Magdalena Sulova skoraði tvö marka Íslands í dag, Friðrika Magnúsdóttir, Kolbrún Björnsdóttir og Eyrún Garðarsdóttir eitt mark hver. Þær Kolbrún og Friðrika áttu báðar stoðsendingu og þá átti Sólrún Arnardóttir þrjár stoðsendingar í leiknum.