Ítalinn Jannik Sinner vann Opna ástralska meistaramótið í einliðaleik í tennis um helgina með því að leggja Þjóðverjann Alexander Zverev örugglega, 3:0, í úrslitaleik. Er þetta annað árið í röð sem Sinner vinnur mótið.
Hann er aðeins 23 ára gamall og hefur nú unnið þrjú af síðustu fimm stórmótum í einliðaleik í tennis. Sinner hefur alls unnið þrjú stórmót.
Í gær vann hann fyrsta sett gegn Zverev 6:3, fylgdi því eftir með því að vinna annað sett 7:6 eftir upphækkun og vann svo þriðja sett einnig 6:3.