Fékk sleggju í sig og lést

Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.
Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. AFP/Kirill Kudryavtsev

Áhorfandi á frjálsíþróttakeppni í Colorado Springs í Bandaríkjunum lést af slysförum þegar keppandi tók þátt í sleggjukasti og hæfði hann óvart með sleggjunni.

Áhorfandinn hét Wade Langston og var 57 ára gamall en hann var staddur á frjálsíþróttakeppni innanhúss á háskólasvæði Colorado-háskólans á sunnudag.

Þar var Langston að fylgjast með afkvæmi sínu keppa og samkvæmt staðarmiðlinum KRDO lést hann við að hlífa eiginkonu sinni og syni frá sleggjunni. Sleggja getur vegið allt að 7,3 kg.

Lögreglan í Colorado Springs hefur tilkynnt að málið sé ekki rannsakað á þeim grundvelli að glæpur hafi verið framinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert