Skautafélag Reykjavíkur vann öruggan sigur á SFH, liði Hafnfirðinga, á Íslandsmóti karla í íshokkíi í Skautahöllinni í Laugardal í kvöld, 7:2.
Staðan var 4:1 eftir fyrsta leikhluta og sigur SR var aldrei í hættu eftir það.
Kári Arnarsson og Axel Orongan skoruðu tvö mörk hvor fyrir SR í leiknum, Gunnlaugur Þorsteinsson, Sölvi Atlason og Alex Sveinsson eitt hver. Fyrir Hafnfirðinga skoruðu Styrmir Maack og Heiðar Kristveigarson.
SA er með 29 stig á toppi deildarinnar, SR er með 26 stig, Fjölnir 18 og SFH 11 stig.