Aksturskappinn Lewis Hamilton, sem skipti nýverið frá Mercedes yfir til Ferrari, klessti bifreið sína á æfingu liðsins á Spáni í dag.
Hamilton er ómeiddur eftir áreksturinn á Circuit de Barcelona-Catalunya-brautinni í Barcelona.
Var þetta annar æfingadagur Ferrari-liðsins á brautinni þar sem hann er við æfingar ásamt liðsfélaga sínum Charles Leclerc.
Nýtt tímabil í Formúlu 1 hefst um miðjan mars þegar Ástralíu kappaksturinn fer fram. Þar vonast Ferrari til þess að Hamilton keppi í fyrsta sinn fyrir liðið.