Þreyttu frumraunina í Tallinn í dag

Júlía Sylvía Gunnarsdóttir og Manuel Piazza.
Júlía Sylvía Gunnarsdóttir og Manuel Piazza. Ljósmynd/Skautasamband Íslands

Júlía Sylvía Gunnarsdóttir og Manuel Piazza urðu í dag fyrst til að keppa fyrir Íslands hönd í parakeppni á Evrópumóti í listhlaupi á skautum.

Mótið fer fram í Tallinn í Eistlandi og þau tóku þátt í stutta prógramminu núna um hádegið. Þar enduðu þau í átjánda og síðasta sæti af jafnmörgum keppendum með 48,58 stig.

Sextán bestu komust áfram og þau Júlía og Manuel hefðu þurf að fá 51,69 stig til að komast í þann hóp. Sænskt par var rétt fyrir ofan þau í sautjánda sætinu en par frá Finnlandi náði því sextánda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert