Í þriðja sæti í Austurríki

Arnór Dagur Þórodsson, lengst til hægri.
Arnór Dagur Þórodsson, lengst til hægri. Ljósmynd/SKÍ

Arnór Dagur Þóroddsson, landsliðsmaður í snjóbrettum úr BFH, tók þátt á alþjóðlegu móti í Zillertal í Austurríki um síðustu helgi og hafnaði þar í þriðja sæti.

Arnór Dagur vann sér inn 83 FIS-stig á mótinu, sem heitir Valley Ralley, og hreppti bronsverðlaun.

Eftir mótið er hann með 256.76 stig og kominn í 96. sæti á heimslistanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert