Willum Þór Þórsson íhugar að bjóða sig fram til forseta ÍSÍ, Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Lárus L. Blöndal er núverandi forseti og hefur verið frá árinu 2013.
RÚV greinir frá. Willum var heilbrigðisráðherra í síðustu ríkisstjórn fyrir Framsóknarflokkinn frá 2021 til 2024 en datt af þingi í Alþingiskosningunum í byrjun árs.
Hann þekkir afar vel til íþrótta því Willum var leikmaður KR, Breiðabliks og Þróttar úr Reykjavík í knattspyrnu frá 1980 til 1999 og þjálfaði lið á borð við Þrótt R., KR, Val, Keflavík og Leikni R. frá 1997 til 2017. Hann lék einnig handknattleik og körfuknattleik með KR á sínum yngri árum.
KR varð Íslandsmeistari karla í knattspyrnu tvisvar undir hans stjórn, árin 2002 og 2003, og Valur árið 2007.
Íþróttaþing ÍSÍ verður haldið 16.-17. maí næstkomandi.