Tilbúin í slaginn á HM

Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir í risasviginu á síðustu Vetrarólympíuleikum.
Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir í risasviginu á síðustu Vetrarólympíuleikum. AFP

Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir keppir á morgun fyrst Íslendinganna á heimsmeistaramótinu í alpagreinum í Saalbach í Austurríki.

Hún er þá á meðal keppenda í risasvigi og keppir síðan aftur í bruni á laugardaginn.

Í næstu viku þegar svig og stórsvig eru á dagskrá er svo komið að hinum fjórum keppendum Íslands en þá keppa Gauti Guðmundsson, Jón Erik Sigurðsson, Sturla Snær Snorrason og Tobias Hansen, ásamt því að Hólmfríður verður einnig með í báðum greinunum.

Hólmfríður tók þátt í lokaæfingunni fyrir risasvigið í morgun. Henni var raðað upp númer 40 í röðinni af 43 keppendum og hafnaði í 40. sæti á 1:48,79 mínútu.

Mirjam Puchner frá Austurríki fékk besta tímann, 1:42,30 mínúta.

Hólmfríður varð í 36. sæti á fyrri æfingunni sem fram fór í gærmorgun, þá á 1:48,80 mínútu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert