„Eins og að vera kýld í loftinu“

Hólmfríður Dóra í brekkunni í Austurríki.
Hólmfríður Dóra í brekkunni í Austurríki. AFP/Dimitar Dilkoff

Skíðakonan Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir lenti í óskemmtilegu atviki á æfingu fyrir brun á HM í alpagreinum í Saalbach í Austurríki í dag.

Loftpúði sem hún var með innan klæða til að vernda hana frá slysum sprakk snemma í brautinni með þeim afleiðingum að Hólmfríður náði ekki að nýta æfinguna eins og hún vonaðist til.

„Loftpúðinn sprakk hjá mér í beygju þrjú. Þetta er svona loftpúði sem er tengdur við bakbrynjuna. Þetta var eins og að vera kýld í loftinu.

Ég datt ekki heldur sprakk hann bara út og ég missti andann,“ er haft eftir henni á heimasíðu Skíðasambands Íslands.

Henni tókst ekki að ljúka keppni í risasvigi í gær en keppir í bruni á laugardag og svigi og stórsvigi eftir helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert