Birgir lék á 75 höggum á þriðja keppnisdegi

Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. Reuters

Birgir Leifur Hafþórsson lék á þremur höggum yfir pari, 75 höggum, í morgun á þriðja keppnisdegi Suður-Afríku meistaramótsins í golfi á Pearl Valley vellinum og er hann því samtals á 11 höggum yfir pari. Birgir er í 60.-63. sæti af alls 69 kylfingum sem komust í gegnum niðurskurðinn á mótinu.

Birgir hóf leik á 1. teig í morgun og var hann á einu höggi undir pari eftir 8 holur en á 9. braut fékk hann skramba (+2). Hann fékk tvo skolla í röð, á 12. og 13. braut en aðrar brautir lék hann á pari vallar.

Skorkort Birgis

Staðan á mótinu.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert