Íslandsmótið í golfi er nú hálfnað á Leirdalsvelli þar sem Birgir Leifur Hafþórsson er í forystu í karlaflokki og þær Ragnhildur Kristinsdóttir og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir leiða í kvennaflokki.
Á öðrum hring í dag settu þær Ólafía og Guðrún Brá Björgvinsdóttir vallarmet, þegar þær fóru hringinn á 71 höggi eða einu undir pari. Þær bættu þar með vallarmet Ragnhildar Sigurðardóttur frá árinu 2009 um eitt högg.
Sjá:
Birgir Leifur með fjögurra högga forystu
Ragnhildur og Ólafía efstar eftir annan hring