Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili á góðar minningar frá Garðavelli á Akranesi þar sem Íslandsmótið í höggleik hefst í dag.
Guðrún setti þar glæsilegt vallarmet þegar hún lék á 66 höggum árið 2012. Hún sagði völlinn henta sér vel þegar mbl.is ræddi við hana á blaðamannafundi GSÍ um borð í Selfossi, flutningaskipi Eimskipa, í gær.