Birgir Leifur Hafþórsson, sexfaldur Íslandsmeistari úr GKG, lék fyrsta hringinn á tveimur undir pari á Akureyri í dag og gerði fá mistök.
Birgir var sáttur við byrjunina í mótinu þegar mbl.is ræddi við hann enda fékk hann aðeins einn skolla á hringnum sem kom á 15. braut.
Birgir segir mjög mikilvægt að hitta brautir á Jaðarsvelli. „Ef þú ert í karganum þá þarftu að hugsa svolítið meira,“ sagði Birgir meðal annars en hann hitti margar brautir og margar flatir í tilætluðum höggafjölda.
Viðtalið við Birgi má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.