Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR hefur styrkt stöðu sína þegar þriðji hringur er hálfnaður á Íslandsmótinu í höggleik á Jaðarsvelli. Ólafía er að leika frábærlega í dag.
Hefur hún fengið fjóra fugla og fimm pör. Er hún samtals á 8 undir pari í mótinu og útlit fyrir að besta skor á 72 holum í Íslandsmótinu verði bætt í kvennaflokki.
Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni er einnig að leika vel og er tvö högg undir pari í dag en hún er nú fjórum höggum á eftir Ólafíu samtals. Guðrún Brá Björgvinsson er einnig tvö högg undir pari í dag en samtals átta á eftir Ólafíu.