Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er búin að ná forystunni af Valdísi Þóru Jónsdóttur úr Leyni en þar hafa orðið miklar sviptingar.
Ólafía er búin að fá fjóra fugla í röð frá 2. - 5. holu en auk þess tvö pör. Rosaleg spilamennska. Valdís hefur fengið tvo fugla en fékk skramba á 3. holuna.
Ólafía hefur nú tveggja högga forskot og er samtals á níu höggum undir pari. Hvort sem það verður Ólafía eða Valdís sem sigrar þá er ljóst að í uppsiglingu er langbesta skor í kvennaflokki í sögu Íslandsmótsins.