Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, hefur þriggja högga forskot á Valdísi Þóru Jónsdóttur, kylfing úr Leyni, á Íslandsmótinu í höggleik í golfi sem lýkur á Jaðarsvelli á Akureyri í dag.
Ólafía Þórunn hefur leikið 13 holur og er 11 höggum undir pari, en Valdís Þóra hefur leikið á átta höggum undir pari eftir jafnmargar holur.
Miklar sviptingar hafa orðið hjá þessum kylfingum í dag, en Ólafía Þórunn fékk fjóra fugla í röð frá 2. – 5. holu og auk þess tvö pör. Rosaleg spilamennska. Valdís fékk hins vegar skramba á 3. holunni.