Tveir kylfingar hafa farið holu í höggi á lokadegi Íslandsmótsins í golfi á Jaðarsvelli á Akureyri í dag.
Sigurbjörn Þorgeirsson úr Golfklúbbi Fjallabyggðar fór holu í höggi á 14. holu og Viktor Ingi Einarsson úr GR lék það eftir á sömu holu rúmum klukkutíma síðar.