Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, íþróttamaður ársins 2017, fór holu í höggi á 17. holu á ANA Inspiration-mótinu sem er fyrsta risamót ársins í golfi en mótið er hluti af LPGA-mótaröðinni bandarísku sem er sú sterkasta í heimi.
Myndskeið af högginu ótrúlega hjá Ólafíu má sjá hér að neðan en draumahöggið fór hún á 17. holunni sem er par 3 og 164 metra löng.
Ólafía fær fyrir draumahöggið tvo miða á fyrsta farrými ANA-flugfélagsins á hvaða áfangastað flugfélagsins sem er.
Just saying, the real question here is whether or not she wins the plane... 🤔 ✈️
— Golf Central (@GolfCentral) March 29, 2018
Iceland's Olafia Kristinsdottir just aced the par-3 17th during her opening round at the @ANAinspiration 🎯 pic.twitter.com/6tm81uaaiA