Henning Darri Þórðarson úr GK bar sigur úr býtum í KPMG-Hvaleyrarbikarnum í golfi eftir bráðabana gegn Kristjáni Þór Einarssyni úr GM.
Henning og Kristján voru jafnir eftir þriðja og síðasta hringinn í dag, báðir á fjórum höggum alls undir pari og þurfti því að grípa til bráðabana um sigurinn á 18. holu. Þar hafði Henning betur strax og vann því mótið.
Rúnar Arnórsson úr GK var efstur eftir annan hringinn í gær en hann fékk skolla á 18. og síðustu holunni í dag og lauk því keppni á þremur höggum undir pari eða einu frá þeim Henning og Kristjáni.