Leikið til góðs

Björn Óskar Guðjónsson úr GM lék afar vel á Íslandsmótinu …
Björn Óskar Guðjónsson úr GM lék afar vel á Íslandsmótinu og hafnaði í 2. sæti. Ljósmynd/Golf.is

Hið árlega góðgerðarmót Nesklúbbsins, Einvígið á Nesinu (shoot-out), verður nú haldið í 22. sinn á Nesvellinum mánudaginn 6. ágúst. Venju samkvæmt er tíu af bestu kylfingum landsins boðið til leiks og munu þeir leika í þágu Barnaspítala Hringsins í þetta skiptið.

„Á Barnaspítalanum er veitt sérhæfð, fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri þar sem í allri þjónustu er áhersla lögð á að greina þarfir og auka vellíðan skjólstæðinga,“ segir í tilkynningu frá Nesklúbbnum.

Mótið verður með hefðbundnu sniði. Klukkan 10 leika keppendur 9 hola höggleik og klukkan 13 hefst einvigið sjálft (shoot-out) þar sem einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast að lokum um sigurinn á 9. holunni.

„Einvígið á Nesinu var fyrst haldið árið 1997 og á þessum tíma hefur Nesklúbburinn komið að því að styrkja félög og samtök, sem láta sig hag barna varða, um rúmlega tuttugu milljónir króna. Í ár ætlar Nesklúbburinn fyrir tilstuðlan velunnara að gefa til Barnaspítalans Hringsins kr. 500.000 í þeirra þörfu verkefni,“ segir enn fremur í tilkynningu klúbbsins.

Þátttakendur í Einvíginu 2018:

Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG Björgvin Sigurbergsson, Keili

Björn Óskar Guðjónsson GM

Dagbjartur Sigurbrandsson, GR

Guðmundur R. Hallgrímsson, GS

Kristján Þór Einarsson, GM

Ólafur Björn Loftsson, NK

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR

Ragnhildur Sigurðardóttir, GR

Rúnar Arnórsson, Keili

Sigurvegarar frá upphafi:

1997 Björgvin Þorsteinsson

1998 Ólöf María Jónsdóttir

1999 Vilhjálmur Ingibergsson

2000 Kristinn Árnason

2001 Björgvin Sigurbergsson

2002 Ólafur Már Sigurðsson

2003 Ragnhildur Sigurðardóttir

2004 Magnús Lárusson

2005 Magnús Lárusson

2006 Magnús Lárusson

2007 Sigurpáll Geir Sveinsson

2008 Heiðar Davíð Bragason

2009 Björgvin Sigurbergsson

2010 Birgir Leifur Hafþórsson

2011 Nökkvi Gunnarsson

2012 Þórður Rafn Gissurarson

2013 Birgir Leifur Hafþórsson

2014 Kristján Þór Einarsson

2015 Aron Snær Júlíusson

2016 Oddur Óli Jónasson

2017 Kristján Þór Einarsson

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert