Leikið til góðs á Nesinu í dag

Kristján Þór Einarsson vann Einvígið í fyrra.
Kristján Þór Einarsson vann Einvígið í fyrra. Ljósmynd/golf.is

Hið árlega góðgerðarmót Nesklúbbsins, Einvígið á Nesinu (shoot-out), er nú haldið í 22. sinn á Nesvellinum í dag. Venju samkvæmt er tíu af bestu kylfingum landsins boðið til leiks og munu þeir leika í þágu Barnaspítala Hringsins í þetta skiptið.

Mótið er með hefðbundnu sniði. Fyrst léku keppendur 9 hola höggleik og klukkan 13 hefst einvígið sjálft (shoot-out) þar sem einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast að lokum um sigurinn á 9. holunni.

„Einvígið á Nesinu var fyrst haldið árið 1997 og á þessum tíma hefur Nesklúbburinn komið að því að styrkja félög og samtök, sem láta sig hag barna varða, um rúmlega tuttugu milljónir króna. Í ár ætlar Nesklúbburinn fyrir tilstuðlan velunnara að gefa til Barnaspítalans Hringsins kr. 500.000 í þeirra þörfu verkefni,“ segir í tilkynningu Nesklúbbsins.

Þátttakendur í Einvíginu 2018:

Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG

Björgvin Sigurbergsson, Keili

Björn Óskar Guðjónsson, GM

Dagbjartur Sigurbrandsson, GR

Guðmundur R. Hallgrímsson, GS

Kristján Þór Einarsson, GM

Ólafur Björn Loftsson, NK

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR

Ragnhildur Sigurðardóttir, GR

Rúnar Arnórsson, Keili

Sigurvegarar frá upphafi:

1997 Björgvin Þorsteinsson

1998 Ólöf María Jónsdóttir

1999 Vilhjálmur Ingibergsson

2000 Kristinn Árnason

2001 Björgvin Sigurbergsson

2002 Ólafur Már Sigurðsson

2003 Ragnhildur Sigurðardóttir

2004 Magnús Lárusson

2005 Magnús Lárusson

2006 Magnús Lárusson

2007 Sigurpáll Geir Sveinsson

2008 Heiðar Davíð Bragason

2009 Björgvin Sigurbergsson

2010 Birgir Leifur Hafþórsson

2011 Nökkvi Gunnarsson

2012 Þórður Rafn Gissurarson

2013 Birgir Leifur Hafþórsson

2014 Kristján Þór Einarsson

2015 Aron Snær Júlíusson

2016 Oddur Óli Jónasson

2017 Kristján Þór Einarsson

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert