Atvinnukylfingarnir Haraldur Franklín Magnús og Ólafur Björn Loftsson komust báðir í gegnum niðurskurðinn í Austurríki á 1. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í gær.
Haraldur Franklín er samtals á 8 höggum undir pari eftir þrjá hringi og er í 18. sæti. Haraldur fékk þrjá fugla, einn örn og tvo skolla á þriðja hringum í gær og lék á þremur höggum undir pari.
Ólafur Björn átti flottan hring í gær en hann lék á 5 höggum undir pari og er samtals á fjórum höggum undir pari í 37. sæti.
Fjórði og síðasti hringurinn verður spilaður í dag en gera má ráð fyrir að rúmlega 20 kylfingar komist áfram á 2. stig úrtökumótsins.