Haraldur Franklín Magnús náði sér ekki á strik á fjórða og síðasta hringnum á 2. stigs úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina í golfi á Spáni í dag.
Haraldur lék lokahringinn á 75 höggum eða þremur höggum yfir pari. Hann lék hringina fjóra á samtals 284 höggum eða fjórum höggum undir pari. Hann er sem stendur í 37.-40. sæti sem mun ekki duga til að komast á lokaúrtökumótið en um 18 efstu kylfingarnir komast áfram.
Haraldur Franklín fékk einn fugl á hringum í dag, tvo skolla og einn skramba.