Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni tekur þátt í lokamóti Evrópumótaraðarinnar í golfi sem hefst á Spáni á morgun. Hún fer á teig í hádeginu að staðartíma.
Valdís á teig klukkan 12:45 að spænskum tíma og er í ráshópi með Silvíu Banon frá Spáni og Línu Boqvist frá Svíþjóð.
Heildarverðlaunafé í mótinu er 300 þúsund evrur og því til mikils að vinna fyrir þá kylfinga sem komast í gegnum niðurskurð keppenda.