Danski kylfingurinn Lucas Bjerregaard fór holu í höggi á lokahringnum á PGA-meistaramótinu í golfi á Bethpage Black-vellinum í Bandaríkjunum í kvöld.
Draumahögginu náði Bjerregard á 17. holu vallarins en höggið má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.
Bjerregard lék fjórða lokahringinn á 73 höggum og endaði á þremur höggum yfir pari.
HOLE-IN-ONE!! pic.twitter.com/tbKhaARtEv
— PGA Championship (@PGAChampionship) May 19, 2019