Írski kylfingurinn Shane Lowry lék glæsilega á þriðja hring Opna mótsins á Royal Portrush-vellinum á Norður-Írlandi í dag. Lowry er með fjögurra högga forystu fyrir lokahringinn á morgun, en hann lék á 63 höggum í dag, átta höggum undir pari.
Lowry, sem aldrei áður hefur unnið risamót, tapaði ekki einu einasta höggi á hringnum og fékk átta fugla. Lowry er á samanlagt 16 höggum undir pari eftir þrjá hringi.
Tommy Fleetwood er í öðru sæti á 12 höggum undir pari og J.B. Holmes, sem var með forystu fyrir lokahringinn, er í þriðja sæti á tíu höggum undir pari. Þar á eftir koma Justin Rose og Brooks Koepka á níu höggum undir pari.
Lowry hafnaði í öðru sæti á Opna bandaríska mótinu árið 2016, en besti árangur hans á Opna mótinu til þessa kom árið 2014 er hann hafnaði í níunda sæti.