Írinn Shane Lowry er í afar góðum málum þegar lokahringur The Open risamótsins í golfi er hálfnaður. Leikið er á Royal Portrush-vellinum á Norður-Írlandi. Lowry er með sex högga forskot þegar níu holur eru eftir.
Lowry fór ekki vel af stað í dag og fékk skolla á fyrstu holu. Hann svaraði því með þremur fuglum og þremur pörum á næstu sex holum. Hann fékk hins vegar tvo skolla til viðbótar á áttundu og níundu holu er því samanlagt á einu höggi undir pari í dag og 16 höggum undir pari alls.
Tommy Fleetwood frá Englandi er enn í öðru sæti, nú á samanlagt ellefu höggum undir pari. Fleetwood er búinn að fá tvo fugla og tvo skolla á holunum níu í dag. Landi hans Lee Westwood er í þriðja sæti á níu höggum undir pari.
Lowry endaði í öðru sæti á Opna bandaríska meistaramótinu árið 2016 og besti árangur hans á Opna mótinu til þessa kom árið 2014 þegar hann endaði í níunda sæti.