Íþróttadeild Morgunblaðsins og mbl.is heldur áfram að gramsa í myndasafni Morgunblaðsins og birta á mbl.is á laugardögum.
Sigursælasti kylfingur sögunnar, Jack Nicklaus frá Bandaríkjunum, er í hópi þeirra sem kalla má Íslandsvini. Hefur hann nokkrum sinnum komið til landsins og líklega ávallt í þeim tilgangi að renna fyrir lax.
Hefur hann bæði heimsótt Golfklúbb Akureyar og Nesklúbbinn á Seltjarnarnesi í heimsóknum sínum til Íslands síðustu áratugina.
Morgunblaðið hefur marg sinnis í gegnum árin sagt frá fréttir af því að Nicklaus væri á Íslandi í laxveiði. Árið 1994 greindi blaðið til dæmis frá því að Nicklaus og Uffe Ellemann Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur, hefðu veitt á sama tíma í Laxá í Aðaldal.
Sjö árum fyrr eða árið 1987 hafði Morgunblaðið þetta eftir Nicklaus þegar hann hafði verið í veið í sömu á: „Við veiddum 8 laxa, ég og dóttir mín, ég fékk fimm og hún þrjá. Ég er með fjölskylduna með mér í þetta sinn og það er alveg dásamlegt að koma hingað og veiða. Maður nýtur náttúrunnar og næðisins og hvílist mjög vel."
Meðfylgjandi mynd birtist í Morgunblaðinu hinn 4. ágúst 2005 og er tekinn af Kristjáni Kristjánssyni á Akureyri. Nicklaus var þá staddur í golfskálanum á Jaðarsvelli á Akureyri en Nicklaus var þá orðinn heiðursfélagi Golfklúbbs Akureyrar. Á myndinni skoðar Gullbjörninni myndaspyrpu af heimsókn sinni á Jaðarsvell árið 1992 en myndasyrpan hangir uppi á vegg í húsakynnum GA. Hann hafði þá verið í stangveiði í Fljótunum ásamt tveimur sonum sínum og þremur vinum samkvæmt frásögn blaðsins.
Jack Nicklaus sigraði átján sinnum á risamótunum í golfi á keppnisferli sínum, oftar en nokkur annar til þessa.