Golfklúbbur Reykjavíkur bar sigur úr býtum í kvennaflokki á Íslandsmóti golfklúbba eftir 4:1-sigur á Keili. Er þetta í 21. skipti sem GR ber sigur úr býtum á mótinu síðan 1982. Fer mótið fram á Leirdalsvelli og Urriðavelli.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Eva Karen Björnsdóttir og Saga Traustadóttir skipa lið Golfklúbbs Reykjavíkur, sem vann titilinn af GKG sem varð meistari á síðasta ári.
Golfklúbbur Mosfellsbæjar varð í þriðja sæti eftir sigur á Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, 3:2. Sara Kristinsdóttir, Kristín Sól Guðmundsdóttir, Katrín Dögg Hilmarsdóttir, Nína Björk Geirsdóttir, María Eir Guðjónsdóttir og Arna Rún Kristjánsdóttir skipa lið Golfklúbbs Mosfellsbæjar.