Náttúruöflin á Íslandi virðast vera Englendingnum Sir Nick Faldo ofarlega í huga ef marka má ummæli hans í beinni sjónvarpsútsendingu bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar NBC í kvöld.
Faldo var ásamt fleirum að lýsa því sem fyrir augu bar á World Golf Championships Match Play í kvöld en segja má að mótið sé eins konar heimsmeistaramót í holukeppni í golfi og er nú haldið í Texas.
Englendingarnir Mike Wallace og Tyrrell Hatton áttust við. Hatton sló annað högg sitt á 16. holu og höggið misheppnaðist. Hatton er í 8. sæti heimslistans en hefur átt það til að missa stjórn á skapinu á golfvellinum þótt honum hafi tekist að bæta þann þátt á undanförnum misserum. Hatton var ósáttur við höggið og barði kylfingunni af miklu afli í jörðina og henti í framhaldinu kylfunni frá sér.
Lýsendum var skemmt og sagði Sir Nick Faldo: „Þau fundu fyrir þessu á Íslandi. Enn einn jarðskjálftinn."
Faldo þekkir sig ágætlega á Íslandi því snemma á þessari öld var til skoðunar hjá honum að hanna golfvöll í svarta sandinum nærri Þorlákshöfn.